Auglýst er eftir Timburmanni sem týndist aðfaranótt föstudagins síðasta. Timburmaður þessi er meðalmaður á hæð og frekar þybbinn. Hann er með útstæð eyru, mjög hrukkóttur og með stóra poka undir augum. Hann er með plattfót, örvhentur og rauðhærður. Hann er hokinn og með smá kryppu á baki auk þess sem það vantar á hann fingur á hægri hendi. Hann er auk þess með þvagleka og mikla vindverki.
Þeir sem finna hann…
…eru vinsamlega beðnir um að vera ekkert að hafa hátt um það !

