Þó ljóst sé orðið að hinn margheimsfrægi Gunther komist ekki á vorfagnað Timburmanna þetta árið, frekar en hin fyrri, þá hefur fjölmiðladeild hans haft samband beint við Kaftein Timburmanna með alveg ofboðslega sexý og fallegar fréttir.
“Þetta er bara alveg… hreint svakalega fallegt…” náði Kafteinninn að stynja upp úr sér í viðtali við Timbur-fréttir nú rétt áðan.
“Hann bara,….. hann bara…. úff Vá!… hann bara”
Og enn þurfti fréttamaður Timbur-frétta að bíða í nokkrar mínútur.
“Hann bara samdi og sendi okkur nýtt lag!!!!!!” náði Kafteinninn loksins að koma út úr sér.
Og hér er það, sárabót Gunthers til Timburmanna. Stórglæsilegt, seiðandi og sexý:
