Íþróttaálfur Timburmanna, Maggi Skelfing, tók á dögunum þátt í innanhéraðsmóti í blandaðri glímu sem fram fór á Fagurhólsmýri. Timburmenn styrktu Magga til keppninnar með kremkexi og kókómjólk, en það dugði ekki til. Skemmst er frá því að segja að Maggi var einstaklega óheppinn að lenda í sinni fyrstu keppni á móti heimasætunni Vöndu Sigg og átti Maggi því miður aldrei möguleika í þeirri keppni, svo ójöfn var hún í alla staði. Vanda vandaði sig virkilega og valtaði vandlega yfir vesalings Magga og sigraði hann með áður óþekktu táfýlu-bragði, eins og sjá má ef myndin prentast vel (lyktin finnst samt því miður ekki í gegnum netið).
Maggi hefur ákveðið að leggja glímubúninginn á hilluna og fara bara í einhver venjuleg föt í staðinn!

