Stjórn Timburmanna hefur unnið að því dag og nótt að fá stórkostlegasta listamann allra tíma, Gunther, til að mæta á komandi vorfagnað Timburmanna, sem í ár nefnist hinu ágæta nafni “Gos og Hraun”.
Gunther hlaut sem kunnugt er heimsfrægð þegar hann samdi hið ódauðlega lag “Ding dong song” sem kom út árið 2004 og hefur síðan þá ætíð verið talið besta lag í heimi!
Fáir vita hinsvegar að þegar meistari Gunther samdi þetta lag þá hafði hann annað lag í huga sem kom út árið 1984 og heitir “Tralala, ding dong song og er með hinni velþekktu hljómsveit Phil & Company.
En já það er semsagt staðfest að Gunther kemur ekki í vorferð Timburmanna að þessu sinni, þrátt fyrir þrábeiðni Timburmanna. Timbur-fréttir hafði samband við Gunther og var hann spurður hver væri ástæða þess að hann hefði ákveðið að mæta ekki í vorðferðina. Gunther svaraði: “Tja þessir dúddar sem höfðu samband við mig einfaldlega snertu ekki tralala-ið hjá mér!”

