Eilífur þambann, félagi í Timburmönnum, treystir Kafteini Timburmanna til að leiða félagið áfram í allri umræðu. Hann telur gagnrýnina sem Timburmenn hafa fengið í kjölfar orða Kafteinsins í hlaðvarpsþættinum Full pæling full harkalega.
Kafteinninn sagði meðal annars í hlaðvarpsþættinum að Timburmenn Íslands ættu ekki að skera sig frá Norðurlöndum (hvað svo sem það þýðir).
Ýmsir félagar í Timburmönnum hafa gagnrýnt orð Kafteinsins. Þó hefur Jón Jón Jónsson, sérlegur fullur trúi Timburmanna, tekið undir orð Kafteinsins, sem og varakafteinn Timburmanna.
Eftir situr að enginn veit hvað verið var að ræða um né hvaða skilaboðum raunverulega var verið að reyna að koma á framfæri.
