Fátt er nú meira í fréttum en skilnaður hjónanna Pitt og Jolie, en þau eiga sem kunnugt er haug af börnum og vesen. Þessi skilnaður kemur sem himnasending fyrir aðra sem hafa verið undanfarið milli tannana á fólki, eins og t.d. lögreglumenn í USA sem geta nú
skotið hvaða svertinga sem er án þess að nokkur minnist á það einu orði. Einnig þykir nokkuð ljóst að Trump geti orðið forseti án þess að nokkur hafi áhyggjur af því, enda verður fólk að reyna að skilja að Hollywood hjónin eru að skilja og það er stærra mál en öll önnur. Brad Pitt er þá kominn í sömu spor og Keli köttur en hann er sem kunnugt er nýskilinn við Ástu hans Kela, sem fékk sér lögfræðing til að sjá um þann skilnað. Hún tók reyndar hugtakið “að fá sér lögfræðing” lengra en flestir gera, en því miður getum við ekki farið lengra út í þá sálma hér. Keli köttur sem er helköttaður eins og Brad Pitt, hefur gefið frá sér yfirlýsingu um málið, en því miður nennir enginn að lesa þá yfirlýsingu þar sem menn eru of uppteknir af Brangenlina skilnaðinum. Þess má svo að lokum geta að vegna skilnaðarins í Hollywood mun enginn lesa þessa frétt !
