Myndin er sviðsett
Eins og allir vita hafa Ísfirðingar lengi farið til Flateyrar til að gera þarfir sínar, eins og eðlilegt þykir. Nú hafa hinsvegar Flateyringar skorið upp herör gegn síþarfagerandi

Ísfirðingum og hafa þeir sett hengilás á salerni þorpsins. Ísfirðingar eru að vonum óhressir með þetta og hefur bæjarstjóri Ísafjarðar farið fram á lögbann á hengilásinn og tafarlausar úrbætur og umbætur og ýmsar aðrar bætur. Sveitastjóri Flateyrar gaf ekki kost á viðtali vegna málsins, og ekki náðist í bæjarstjórann á ísafirði, en ritari hans sagði tíðindamanni Timbur-frétta að hann væri staddur á Flateyri í biðröð !
