Ríkisstjórn landsins hefur leitað til Timburmanna og falast eftir að fá í það minnsta einn félaga til að taka að sér að sinna störfum innanríkisráðherra um skamma hríð, eða allt þar til viðkomandi fer að leka og verður hrakinn úr embætti. Formaður Timburmanna hefur hugleitt þetta vandlega, en er því miður upptekinn þessi misserin við að taka til í sokkaskúffunni sinni og fleira, þannig að ef einhverjir áhugsasamir eru þarna úti þá er um að gera að ná sér í tiltölulega þægilega innivinnu, tja allavega í smá stund !
