Sá fáheyrði atburður gerðist í kvöld að hinn sívinsæli og heimsfrægi um allt Ísland poppfræðingur Doktor Gunni tapaði fyrsta poppbardaga sínum. Doktor Gunni keppti við hinn stórfræga poppfræðing Rick Astley og tapaði á stigum. Lokaspurning keppninnar var svona: Er Justin Bieber með eitt eða tvö bringuhár ? En svar doktorsins var: Hverjum er ekki drullusama. Tveir af þremur dómurum dæmdu Doktor Gunna í óhag, enda þótti svar hans bera keim af fordómum í garð hárllausra poppara.
