Gagnalekinn mikli úr stórtölvu í höfuðstöðvum Timburmanna sem átti sér stað 30. febrúar 2015 hefur meðal annars varpað ljósi á drög að aðgerðinni “Úrelding formanns” sem þá þótti hafa setið heldur lengi á valdastóli sínum innan félagsins.
Samkvæmt heimildum Timbur frétta gekk áætlunin út á það að fjarlægja formanninn án þess að nokkur yrði þess var. Þetta átti að gera með því að nýta gervigreind til að líkja eftir rödd hans. Þetta var talið skothelt plan þar sem félagsmenn eru hvort eð er svo sljóir og með hálfa sjón á fundum félagsins þannig ekki var talin nein hætta á að þeir áttuðu sig á skiptunum.
Það atvikaðist þó þannig að áður en til þessara grófu aðgerða var gripið, tók fyrrverandi formaður allt í einu upp á því að segja starfi sínu lausu.
