Heyrst hefur að Timburmenn eigi nú í stökustu vandræðum með að útvega hús fyrir næsta aðalfund, sem áætlað er að fari fram í næsta mánuði.
“Já, þetta er hið versta mál” segir formaður Timburmanna.
“Það hljóp svolítill hiti í menn síðast þannig við enduðum með vissan hluta af aðstöðunni svona… eiginlega… bara á hliðinni, ef svo má að orði komast”.
Atvikið virðist hafa spurst út og eru nú ekki margir staðarhaldarar reiðubúnir að fá félagsmenn í heimsókn til fundahalda.
“Já ég vil nú bara biðla til félaga að haga sér nú vel næst. Í það minnsta láta ekki undan freistingunni að fara í leikinn “Veltum kamrinum””, segir formaðurinn að lokum með bænasvip í augunum.
