Það var auðvitað bara tímaspursmál hvenær formaður Timburmanna myndi taka af skarið og opna sína eigin orlyfans síðu, segja þeir sem til þekkja. Formaðurinn er jú þekktur af nýjunga- og hégómagirni sinni auk þess sem hann er þekktur fyrir að láta allt flakka. Síða formannsins er að sögn ein sú allra djarfasta sem um ræðir af mörgum mögulegum hjá orlyfans. varla þarf að taka það fram að síðan er alls ekki fyrir viðkvæma, hárlausa, skemmtikrafta, eldgleypa, framsóknarmenn, sundmenn, stálpaða, elskendur, hlustendur, fylgjendur, stokkendur, ofnæmispésa, pólfara, sjóveika, sturlaða, fátæka, blindfulla né fávita.
Formaðurinn þverneitaði að koma í viðtal við Timbur-fréttir en leyfði okkur þó góðfúslega, eftir töluverðar þvinganir, að birta eina mynd af þessari umdeildu síðu.
Formaður Timburmanna eins og enginn hefur nokkru sinni séð hann fyrr