Í nýrri hægri ríkisstjórn hægri flokkana er lengst til hægri staðsettur nýr ráðherra sem er hægri ráðherra, en ekki bara það. Hún er einnig yngsti hægri
ráðherrann sem verið hefur lengst til hægri síðan elstu hægri menn muna. Þórdís Kolbrún Hægrifjörð er einungis sex ára, en verður sjö á árinu að eigin sögn. Ekki hefur enn tekist að sannreyna þau gögn í skýrslum hagstofunnar. Þórdis er ráðherra umferðarmála og leggur sérstaka áherslu á hægri beygjur, hægri umferð og að allir séu með hægri stefnuljósin í lagi. Þórdís er ekki bara yngsti og mest hægri ráðherrann heldur er hún líka með glænýtt ráðherrabuff, sem eins og allir vita er miklu flottara og betra en venjuleg og hversdagsleg forsetabuff ! Aðeins einu sinni var yngri ráðherra í ríkisstjórn en það var Emil frá Kattholti sem var ráðherra erlendra tengsla í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs, eins og allir vita. Emil var fullra fimm ára þegar hann sérhæfði sig í málefnum Panama með undraverðum árangri. Við óskum Þórdísi innilega til hamingju með nýja ráðherrastólinn og óskum henni velfarnaðar í starfi.
