Ágætis mæting var á óvæntum aukafundi smíðaklúbbsins síðastliðið kvöld (og nótt). Eins og venja er hófst fundurinn með smá fordrykkju og skemmtun. Til upphitunar var leigður hinn ágætasti salur og sáu staðarhaldarar um að snara upp hinni fínustu dægurlegaskemmtun. Af einskærum velvilja klúbbfélaga fengu nokkrir af almúgastétt að njóta sýningarinnar með fundargestum.
Að upphitunarskemmtun lokinni var svo haldið á leynifundarstað félagsins þar sem fundarstörfum var fram haldið. Mörg mál voru tekin fyrir, þau rædd og engin almennileg niðurstaða fengin, enda hefði niðurstaða einungis í för með sér að fleiri fundir væru óþarfir. Um klukkan 6 í morgun var svo fundi frestað þar sem dagsbirta var farin að gera sig líklega en eins og flestir vita verða alvöru fundir að fara fram í skjóli myrkurs.
