Fyrirtækinu Emm og Ess hefur verið harðbannað að bjóða upp á ís með stráka og stelpubragði að kröfu barnaverndarnefndar. Í áliti nefndarinnar er sagt að það sé algjörlega forkastanlegt að frysta börn af báðum kynjum og selja þau í ís-formi. Á hinn bóginn hefur jafnréttisnefnd lýst velþóknun á viðkomandi ís, þar sem bæði er hægt að fá stúlku og stráka-ís og verðið á þeim er það sama.
