Gunnar Vífilsson fiskverkamaður í Ísbirninum hefur farið í mál við sjálfan sig og fer fram á mun hærri laun en hann hefur áður haft. Skemmst er að minnast svipaðs atviks þegar Már Seðlabankastjóri fór í mál við sjálfan sig vegna meintra vangoldinna launa.
Gunnar sagði í viðtali við lágt launaðan tíðindamann Timbur-frétta að sér þætti meira en sjálfsagt að lögsækja sjálfan sig vegna málsins. “Jú jú ég á ekki betra skilið, ég skrifaði nú sjálfur undir þennan hörmulega samning við Ísbjörninn á sínum tíma og ég vona bara að ég fái rækilega fyrir ferðina hjá dómstólum” ! -Sagði Gunnar að lokum.
