Umhverfisráðherra gaf út tilskipun í dag að banna ætti með öllu hér eftir að halda
svokallaðar álfabrennur, eins og tíðkast hefur á Íslandi eins lengi og elstu menn muna. Ákvörðun þessi er tekin að þaulhugsuðu máli og sett fram með umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Allir vita jú að venjulegar áramótabrennur menga andrúmsloftið verulega, en það er þó ekkert miðað við mengunina sem kemur þegar venjulegir álfar eru brenndir á báli. “Þetta gefur augaleið” – sagði ráðherra í eldheitu viðtali við Timbur-fréttir. “Hver álfur er einstakur og honum fylgir náttúrulega líkamslykt, eins og gengur og gerist. Einnig eru álfar langt frá því að vera snyrtilegir og fara oft ekki í bað svo vikum skiptir, og þessvegna er alveg gríðarlega mengun þegar haldnar eru hefðbundnar álfabrennur !” – sagði ráðherra að lokum og hélt fyrir nefið !
Alli Álfur, talsálfur hins íslenska álfafélags segir að ákvörðun þessari fylgi blendnar tilfinningar. “Það er jú voða fínt og allt það að menn séu hættir að kasta okkur á bálið, en að halda því fram að það sé vond lykt af okkur er náttúrulega rakinn dónaskapur !” Ekki hefur verið ákveðið ennþá hvort hið íslenska álfafélag muni fara í meiðyrðamál við ráðherra, en það verður tekin ákvörðun um það á næsta aðalfundi félagsins.
