Í ljós hefur komið að Steingrímur Joð er í raun ekki til. Við nánari eftirgrennslan Timbur-frétta kom í ljós að Steingrímur Joð er bara “myth” og í raun ekki til. Ástæða er að ætla að hann hafi verið búinn til sem þjóðsaga til að hræða lítil börn, svona líkt og Grýla og Leppalúði. (Já krakkar þau eru ekki til heldur!)
Munurinn á þeim skötuhjúum Grýlu og Leppalúða annarsvegar og Steingrími Joð hinsvegar er þó sá að einungis börn hræðast þau fyrrnefndu, en allir sem hafa greindarvísitölu sem er hærri en 5 hafa þó vit á því að hræðast hinn illræmda formann VG eins og heitan eldinn.
En auðvitað er karlinn ekki til. Það getur enginn verið svona vondur, það gefur auga leið !!!
(og að lokum: Nei Steingrímur Joð og Þorsteinn Joð eru ekki bræður !)
