Það er alveg fullt fullt af ferlega frægu fólki sem mun heiðra okkur pöpul þessa lands með nærveru sinni um komandi hátíðir.
Þar má t.d. nefna stúlknahljómsveitina the Charlies, sem undanfarið hefur lagt hart að sér í vesturheimi með alveg nánast engum árangri, þær stúlkur eru nú staddar á landinu, en þess má geta að þær spara helling í ferðakostnað því þær eru svo litlar að þær geta notað eitt flugsæti saman.
Leoncie hin gullfallega Indverska prinsessa frá Íslandi er komin á skerið og hafði í farteski sínu nýtt og ferskt lag. Sem betur fer fyrir þá lesendur sem hafa tóneyra þá var Leoncie hleypt inn í landið en nýja lagið fékk ekki landvistarleyfi og var sent til baka með einhverjum vítisenglum sem komu með sömu vél.
Ásdís Rán ofurmódel og athafnakona kom til landsins til að heimsækja eiginmann sinn, sem er um þessar mundir að undirbúa sig við að elta tuðru í hávaðaroki á Skaganum í sumar. Við komuna til landsins rakst Ásdís Rán á spegil í Leifsstöð og hefur nú nú eytt tveim sólarhringum í að horfa í spegilinn og dáðst að sjálfri sér.
Gísli Örn Garðarson Vesturportari stoppaði á landinu um þriggja mínútna skeið fyrir skömmu en á þeim tíma setti hann upp tvær leiksýningar, tók við þrennum verðlaunum, borðaði Kentucky fried chicken og já eignaðist eitt barn líka.
Anna Mjöll Ólafsdóttir kom einnig fyrir skömmu til landsins með fríðu föruneyti, en þar má nefna eiginmann hennar sem er hundrað fimmtíu og níu ára, fjóra fóstursyni hennar, en sá yngsti þeirra er áttatíu og níu ára og barnfóstru til að passa fóstur-barna-barna-barna-barnið hennar sem nýlega varð tuttugu og sjö ára.
