Vísindamenn frá Japan og Rússlandi undirbúa nú tilraun þar sem ætlunin er að klóna fyrsta Timburmanninn. Fyrsta skrefið í því ferli er að sækja frumukjarna úr lifur hans (sem hefur jú helstu drykkjusögu hans að geyma).
Verður frumukjarnanum komið fyrir í eggi úr bjór (að sjálfsögðu).
Fjallað er um málið á hverfisfundum félagsins og eru margir, m.a. þeir sem tóku þátt í að klóna kindina Dolly hér um árið, ekki mjög bjartsýnir á að þetta takist.
Framámenn Timburmanna eru þó töluvert bjartsýnni á þetta. “Þetta er nú ekki algjörlega fráleitt” sagði núverandi formaður.
Um ástæðu þess að Timburmenn fara út í svona tilraunastarfsemi er svarið: “Jú, sko, þó kallinn sé ekki dauður enn, þá er hann bara svo assgoti góður drykkjufélagi að við getum ekki hugsað okkur að framtíðarklúbbfélagar fái ekki að njóta þess sem við höfum fengið að njóta”.
