Forstjóri Alþingis fékk á dögunum slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu til að skola burtu vonum og draumum íslendinga um betri tíð og blóm í haga. Við þessa hreinsun slökkviliðsins var einnig skolað burtu nokkrum aumum tjaldbúum af torginu, örfáum mótmælendum, Dorrit forsetafrú og slatta af stjórnarandstæðingum. Þetta þykir mikil og góð hreinsun. Því miður náðist ekki að skola borgarstjóranum út úr ráðhúsinu í þessari törn, en það verður örugglega reynt aftur á seinni stigum !
