Neytendaráð Timburmanna hefur beint því til framleiðenda bjórs og allra öldurhúsa landsins að haga framleiðslu og framsetningu drykkja þannig að það taki að hámarki 30 sekúndur fyrir vanan drykkjumann að klára einn bjór. Takist það ekki megi líta svo á að varan hafi ekki verið afhent.
Í leiðbeiningum sem neytendaráðið sendi framleiðendum og öldurhúsum nú í síðustu viku kemur þetta álit fram. Munu Timburmenn í framhaldi áskilja sér þann rétt að neita að greiða fyrir “óafhenta” vöru, eins og þeir kalla það.
Neytendaráð Timburmanna segir að því hafi borist fjöldi ábendinga og kvartana um að neytendur nái ekki að klára bjór sinn á nógu skömmum tíma. Þetta hafi í för með sér að illa gangi að viðhalda ástandi því sem sóst sé eftir. Af þeirri ástæðu hafi ráðið talið sig knúið að gera eitthvað í málinu.
