Sá fáheyrði atburður átti sér stað í nótt að tveir ungir menn fóru upp á Stjórnarráðið.
Þeir náðu þó ekki fram vilja sínum enda Stjórnarráðið ekkert á því að hleypa tveim á sig í einu… allavega ekki svona almúgafólki. Stjórnarráðið hringdi í lögregluna og bað um aðstoð.
Að sögn lögreglunnar voru ungu mennirnir undir áhrifum áfengis. “Ég meina, hver hefur áhuga á að fara allsgáður upp á Stjórnarráðið?”, sagði talsmaður lögreglunnar. “Það er ekki eins og þetta sé það besta sem menn geta komist upp á”.
Heyrst hefur að ungu mennirnir hafi ítrekað gólað “Timbur” á meðan þeir voru á Stjórnarráðinu. Timbur-Fréttir óskuðu eftir svari frá formanni Timburmanna hvort hér hafi verið um félaga að ræða. Hann neitaði að tjá sig nokkuð um málið.
