Á dögunum var haldið svokallað “dirty night” á bæjarskrifstofum Kópavogsbæjar, og þótti athæfið heppnast einstaklega vel. Bæjarstjóri Kópavogsbæjar tjáði sig við tíðindamann Timbur-frétta um málið fyrr í dag: “Já það er rétt, við héldum svokallað dirty night á skrifstofunni í gær. Þá mætum við öll í vinnugöllunum og þrífum hátt og lágt og gerum fínt í kringum okkur á skrifstofunni. Ekki veitir af því við göngum einstaklega illa um, öll sem eitt. Eins notum við alltaf tækifærið á þessu kvöldi og sópum nokkrum óþægilegum málum undir teppið, því þá þarf jú ekki að hafa áhyggjur af þeim meir ! …tja allavega ekki í bili !”
