“Já það er kominn tími til að láta staðar numið” – sagði biskupinn í ótrúlegu viðtali við Timbur-fréttir. “Ég er nú búinn að standa hér í fimmtán ár rúm og þetta er orðið ágætt. Það er líka farið að vera frekar stirt samband hér á borðinu, hrókurinn er alltaf í hrókasamræðum við drottninguna, riddarinn eilíflega með einhver hrossalæti og aumingja kóngurinn lætur gremju sína í sífellu bitna á peðunum ! …ég held þetta sé bara komið gott og segi skák og mát !”
