Árni Páll (einhver ráðherra) hefur lagt það til að kaupglaði Kínverjinn sem vill kaupa Grímsstaði fái til þess tilskilin leyfi og að ekki verið staðið í vegi fyrir honum. Árni Páll lagði einnig til að auk Grímsstaða fái kínverjinn knái Bessastaði í kaupbæti, með öllu sem þar er ! – Því miður missti Árni Johnsen af þessari umræðu þar sem hann var var upptekinn við að hrjóta !
Lilli Api, forstjóri Iceland Express, hefur sagt upp fullt fullt fullt af tveimur mönnum á skrifstofunni hjá félaginu. Aðspurður sagði Lilli Api að þessir tveir gaurar hafi hagað sér alveg eins og bavíanar. Þeir hafi mætt á réttum tíma, sýnt vinnusemi og dugnað, sem þykir alveg fyrir neðan allar hellur á þessum bæ. – Því miður missti Árni Johnsen af þessum aðgerðum þar sem hann var var upptekinn við að hrjóta !
Formanns-slagurinn í Sjálfstæðisflokknum er nú í algleymingi, og má með sanni segja að hver blá höndin sé nú upp á móti annari. Allir í flokknum taka þátt í þessum látum af lífi og sál… ! …Tja nema Árni Johnsen en hann er alveg spakur og til friðs hrjótandi úti í horni.
Rýma þurfti Alþingishúsið nokkrum sinnum í dag þar sem torkennilegar drunur heyrðust annað veifið, og finna mátti stöku kippi líkt og í jarðskjálfta, og voru þingmenn fluttir í öruggt skjól meðan grennslast var fyrir um hvað væri eiginlega í gangi. Í ljós kom hinsvegar að upptökur drunanna og skjálftanna mátti rekja til hrotanna í Árna Johnssen, en Ólína Þorvarðar var einmitt að passa hann og var hún nýbúin að svæfa strákinn.
Önundur önuglyndi varð fyrir þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að verða undir slysi og þegar hann raknaði úr rotinu var hann ekki lengur Önundur önuglyndi heldur Önundur öfugi. Hann vaknaði semsagt samkynhneigður eftir slysið – alveg furðulegt ! – Samkynhneiðgir um allan heim hafa nú biðlað til allra Íslenskra alþingismanna að þeir veki nú ekki Árna Johnsen, því menn vilja alls ekki fá hann í flokk hinna öfugu !
