“Það sem gerðist var að ég lagði öll spilin á borðið. Sannleikurinn gerir mann frjálsan. Ég sagði bara hvað ég var að gera. Ég var í pönnukökum, vöflum, kleinum og mjólk. Ég lagði þetta allt á borðið,” segir vefstjóri Timburmanna í ítarlegu opnuviðtali í nýjustu útgáfu “Nýtt vín” sem félagið gefur út reglulega handa félagsmönnum.
“Ég var búinn að vera í mjög stífri neyslu. Manni fannst einhvernveginn maður vera eðlilegur þegar maður var með draslið í sér. Maður fékk sér pönnuköku og svo var það bara ein vafla og eitt mjólkurglas. Þetta var orðin dagleg athöfn.
Ég bara vaknaði einn daginn og var kominn með nóg. Tók upp símann og pantaði viðtal við formann Timburmanna.” segir vefstjórinn og staðhæfir að hann hafi aldrei verið eins fylltur af anda og í dag.
Vefstjórinn svífur í “vín”anda en því ástandi kynntist hann á afar sérstakan hátt. “Mér var boðið á gleðistund Timburmanna af fyrrverandi pönnukökudílernum mínum og sá hvernig hann geislaði eins og sólin eftir að hafa “fengið andann” eins og félagar kalla það. Hann leiddi mig í gegnum inngönguferlið og verð ég ævinlega þakklátur honum fyrir það. Á þessari gleðistund voru þrjár ungar stelpur frá Belgíu sem sýndu okkur ansi huggulegt dansatriði. Ég bara horfði á það og varð fyrir stórkostlegri upplifun. Það bara gerðist eitthvað.”
Endilega lesið svæsið og ítarlegt viðtalið í blaði hjá næsta Timburmanni.
