
Timburmenn – kokteiladeild hefur nú sett á markað nýjan kokteil, Almyrkvann. Hann er, eins og gefur að skilja, algjört nokkát. Þoli menn einn slíkan fá þeir annan frían þar til almyrkur verður í kolli neytandans.
“Já, við ábyrgjumst að það mun verða almyrkvi hjá þeim sem fær sér þennan” segir Jón Drykkmann framleiðslustjóri kokteiladeildar Timburmanna.
Innihaldið er:
- Tvöfaldur Spirytus Rektyfikowany (Gæðadrykkur frá Póllandi, aðeins 96% styrkleiki)
- Tvöfaldur Bruichladdich X4 Quadrupled Whiskey (Skoskt gæða viskí, aðeins 92% styrkleiki)
- Einfaldur Beithir Fire (Sem er rífandi góður bjór, aðeins 75% styrkleiki)
- 2 ml Sprite eða Seven Up (Svo þetta teljist nú alvöru kokteill)
- 1 lítið myntulauf (Svo maður upplifi kuldann sem fylgir almyrkva)
- Allt í lagi að setja vel af klaka með
Neyta skal kokteilsins í einum rykk, þar sem hann er bestur ferskur.
