Miðasala er nú hafin á endurkomutónleika hljómsveitarinnar Oasis, en þessarar endurkomu hefur verið beðið eftir með mikilli eftirvæntingu í mörg mörg ár. Hljómsveitin Oasis gat sér gott orð fyrir nokkrum áratugum i hinni svokölluðu “bresku bylgju”, hvar hljómsveitir eins og Blur, Pulp, Suede og fleiri þóttu standa öðrum fremri ásamst Oasis auðvitað.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan slagssmálabræðurnir óstýrlátu í Oasis spiluðu saman síðast og þeir eru auðvitað engin unglömb lengur og hefur hljómsveitin þessvegna skipt algörlega um stíl, eftir aldri og aðstæðum eins og segir i tilkynningu frá bræðrunum.
“Já við erum náttúrulega orðnir gamlir kallar” – sagði annar bróðirinn í viðtali við Timbur-fréttir. “Við spiluðum náttúrulega bara rokk og ról hérna í gamla daga og slógumst, en nú aðhyllumst við frekar svona lúðrasveitatónlist og höfum þessvegna breytt svolítið um stíl. Þannig að í stað þess að gefa hvor öðrum á lúðurinn þá bara spilum við í lúðurinn í staðinn!”

