“Ég get auðvitað ekki neitað því að það hefur verið komið að máli við mig varðandi þetta, og auðvitað tel ég það skyldu mína sem Kafteinn að hugleiða mína stöðu alvarlega varðandi mál þetta.”
-Sagði Kafteinn Timburmanna nýlega í alvörugefnu viðtali við Timbur-fréttir. Eins og alþjóð veit hefur forsetinn þarna í skrýtnu sokkunum með buffið ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs og er því ljóst að nýr forseti mun verma Lazyboy stól Bassastaða eftir næstu forsetakosningar.
“Já já bæði mamma og Fríðgerður frænka hafa komið að máli við mig. Þær minntust að vísu ekkert á að ég ætti að fara í framboð, en ég skynjaði bara svo sterkt að það var nákvæmlega það sem þær meintu þegar þær voru að skamma mig fyrir að gleyma að sturta niður enn einu sinni” – sagði Kafteinninn og ljóst er að hann tekur þennan mikla stuðning, sem mætti jafnvel kalla þetta þrýsting, verulega alvarlega.
“Já og ég skynjaði mjög sterkt líka hjá kettinum mínum sem hvæsti á mig um daginn að honum þykir að ég ætti einnig að bjóða mig fram til biskups og til formanns KSÍ” – sagði kafteinninn að lokum áður en hann lagði sig.

