Sænska daman er á teig og þegar hún beygir sig niður til að tía upp boltann, blæs golan upp pilsinu og sýnir að hún er nærbuxnalaus.
„Guð minn almáttugur, kona, af hverju ertu ekki í buxum?“, segir Óli.
„Ja“, segir hún, „þú lætur mig hafa svo lítið af peningum til heimilisins að ég hef ekki efni á þeim…“
Svíinn fer í vasann og segir: „Svona fyrir siðsemis sakir, hér er fimmtíukall og þú skalt fara og kaupa þér undirföt“.
Svo var það írska daman sem fór á teig, beigir sig til að tía upp og golan lyftir pilsinu hennar líka og það kemur í ljós að hún er heldur ekki í neinum buxum.
„Heilaga guðsmóðir!“, segir Írinn. „Þú ert buxnalaus, kona! Af hverju?“
Hún svarar: „Ég hef ekki efni á þeim vegna þeirra litlu peninga sem ég fæ frá þér“.
Patrekur fer í vasann og segir: „Fyrir siðsemissakir, hér er 20 kall. Farðu og keyptu þér nærbuxur!“
Loks beygir skoska daman sig. Golan feykir upp pilsinu og sýnir að hún er einnig nakin undir því.
„Guð minn almáttugur Aggie! Hvar í andskotanum eru brækurnar þínar!“
„Þú lést mig ekki fá nógu mikla peninga til að hafa efni á þeim“, segir hún.
Skotinn fer í vasann og segir: „Í öllum bænum, hér er greiða….. Reyndu nú að snyrta þig svolítið…..!“
